Við meintu Viðeyjar-hrings safnarar erum saklausir af því. Ætluðum reyndar en okkur fannst Lundey meira spennandi þ.e. að taka lens og jafnvel brimreið til baka. Nokkuð puð í margar mínutur fyrir secundur á brimi. Samt ógeðslega gaman
Tíu ræðarar mættu austanmegin við eyðið. Ákveðið var að fara Geldingarneshring a.m.k. Sjö kláruðu hann en þrír bættu Viðey í safnið. Spáin gekk eftir norðaustan strekkingur. Allt gekk vel.
Ein nýliða mætti hennar annar róður á sjó ásamt námskeiði í sundlaug. Klárað með sóma.
Ég skipti við Svenna og er skráður með félagsróðurinn á morgun. Samkvæmt spánni verður norðaustan strekkingur. Sjáum hvað setur
ákvarðanir verða teknar á pallinum einsog svo oft áður.