Þessa dagana eru árnar hér í Voss að ryðja sig og nú styttist verulega í að kajak vertíðin byrji af fullum krafti.
Ég er hins vegar dálítið óþolinmóður og ákvað þess vegna að nýta góða veðrið í gær og setja á flot. Tók eina bunu í Efri-Stranda eins og við köllum hana. Létt og þægilegt og fínt til að skola rykið af bæði bát og ræðara.