23 apríl - Vinnudagur Klúbbins að Geldingarnesi

04 apr 2016 20:23 #16 by Þóra
Mæti....verður kótilettukarlinn ekki örugglega á staðnum??

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 apr 2016 19:06 #17 by Andri
Mæti

Kv
Andri

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 apr 2016 15:53 #18 by Klara

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 apr 2016 15:10 #19 by Össur I
Mæti með bros á vör, enda langt síðan ég hef séð ykkur :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 apr 2016 15:06 #20 by Össur I
Jæja kæru félagar, þá er að nálgast vinnudaginn okkar árlega.

Stefnt er að því að hafa hann laugardaginn 23. apríl kl 10:00
Verkefnalistinn er í grófumdráttum eftirfarandi, en endilega koma með ábendingar ef það er eitthvað sem þið sjáið að mætti betrumbæta hjá okkur.

Allir mæti með áhöld sem þeir eiga eins og vaninn er.

1) Ryðhreinsa gámana og grunna, ryðbletti á veggjum og þök. Það verður lagt áhersla á þetta þar sem við stefum þa því að láta heilsprauta fyrir okkur gámana.
Við gerum þetta með svipuðum hætti og undanfarið ár, förum á alla gáma með sporjárni og skröpum/rispum burtu allt ryð eins og unnt er. Grunnum svo með ryðvarnar ætigrunni.
Gámarnir verða svo heilsprautaðir síðar.
2) Taka til í klúbbbátagámum og græja rekka undir dót.
Fara í gegnum dótið, reyna að græja varanlega rekka, raða og koma þessu snyrtilega fyrir
3) Fara yfir opnun allra gáma:
Sumir mjög stífir, sérstaklega þegar frost er. Smyrja lamir á öllum gámunum og skoða hvort þarf ekki að taka þéttingar við gólf. Sumir gámarnir eru mjög stífir vegna þess að þeir sitja á þessum þéttingum, spurning um að slípa af gúmmiþéttingum með slípiskífu í slípirokk ??
4) Bátageymslugámar.
Taka alla báta út og þrífa sópa vel út úr öllum gámum.
5) Moka sandinn frá pallinum og slétta með hrífum framan við gáma. (gera snyrtilegt)
6) Bera fúavörn í pallinn, rekkverkið og bekkinn. (svona bara til að láta þetta líta vel út)
7) Taka til á nærsvæði við aðstöðuna,
tína rusl og hreinsa til, taka saman þangið sem er á víð og dreif um allt og safna sama í haug (fáum svo hverfastöðina til að taka þettað fyrir okkur)
8) Þrífa aðstöðugámana, opna og spúla vel út úr öllum gámum.
9) Fara í gegnum búnað klúbbsins, galla, báta og annað og tryggja að græjurnar séu í góðu ástandi
10) Kaupa salernispappír, kaffipúða, kex ofl.

Kv Össi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum