Það voru 3 klúbbmeðlimir og 4 nemendur úr Keili sem mættu í dag og æfðu róðratökin. Einnig dúkkaði upp frægur skemmtikraftur ásamt afleggjara sínum og fékk að grípa í bátana sér til mikillar skemmtunar en það var Pétur Jóhann sjálfur. Var þetta því hin skemmtilegasta æfing þó fámenn væri.