Félagsróður 30. apríl

30 apr 2016 14:44 #1 by Klara
Replied by Klara on topic Félagsróður 30. apríl
Miðað við síðustu félagsróðra var fámennt í dag, 11 bátar af sjó
Róið var út í Þerney og til baka, en Smári og Einar Sveinn bættu við Geldinganeshring.
Þrír nýliðar sem allir stóðu sig með sóma.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 apr 2016 08:25 #2 by Klara
Sú sem þetta skrifar verður róðrarstjóri á laugardaginn í forföllum skipaðs róðrarstjóra og fyrsta afleysingamanns. Vara-vara-maður er semsagt kominn á pallinn.

Veðurspá er nokkuð góð eins og staðan er núna og því er tilvalið að mæta í róður, bursta vetrarrykið af bátunum - ef við á - og drífa sig út í góða veðrið.

Það verða nýliðar með okkur og við sjáum til með róðrarleið, það kemur vel til greina að tvískipta hópum. Reyndar verða nokkur förföll úr hópi reyndari ræðara þar sem hópur manna og kvenna verður að leika sér í Wales. En við leysum þetta allt á staðnum.

Sjáumst á sjó.
Klara

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum