Góðir félagar
Minni á að næsta sunnudag, 5. júní, sjálfan Sjómannadaginn, verður hinn árlegi Hörpuróður, frá Skarfakletti inn í Reykjavíkurhöfn. Þetta verður algjör yndisróður, í hefðbundnu blíðskaparveðri, sem enginn getur látið fram hjá sér fara.
Nánar verður sagt af honum síðar í vikunni, tímasetningar og annað. Vil þó minna strax á góð sólvarnarkrem og sólgleraugu svo það gleymist nú ekki.
Bjarni Kr.