Félagsróður 07.7 - Brakandi blíða

06 júl 2016 23:03 #1 by Guðni Páll
Ég hef tekið að mér róðrarstjórn á morgun fyrir Magga Sigurjóns sem er fastur í Breiðafirði.
En það spáir brakandi blíðu og fallegu sumarkvöld og því tilvalið að mæta í róður og rifja upp smá takta fyrir ferð á Arnarstapa um komandi helgi.
Róðrarleið verður ákveðin á pallinum með tilliti til þeirra sem mæta.
Það er klárt að það verður kaffistopp svo ég mæli með að fólk mæti með smávegis nesti með sér.


P.s Þeir sem ætla að nýta sér lánsbáta klúbbsins muna að mæta tímanlega


Kv Guðni Páll

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum