Það var logn og sléttur sjó en rigning og þungbúið þegar ég lagði upp í róður um Viðey nú um hádegisbil í dag 23.7.
Farið var Viðeyjarsund og vestur fyrir Viðey.
Tekið kaffistopp undir Eiðisbjarginu .
Þá stytti upp og nokkur sólarglæta
Farið með Geldinganesi og í fjöru á Eiðinu.
Mætti tveim erlendum ræðurum á "sit on top" bátum á Viðeyjarsundi og síðan voru tvö að fara í róður út Eiðsvíkina þegar ég lenti.
Afbragðs góður róður .
Myndir frá Viðeyjaróðrinum
plus.google.com/photos/11326675796839424.../6310561041833677474
Lagt undir Eiðisbjargi