Félagsróður 11. ágúst

12 ágú 2016 08:42 - 12 ágú 2016 08:55 #1 by Gunni
Replied by Gunni on topic Félagsróður 11. ágúst
Virkilega góð kvöldstund á sjó í gærkvöldi. 21 bátur á sjó. Út austan megin Geldinganess, hringuðum Þerney og inn vestan við eiðið.
Kaffistopp í Þerney og nokkrar æfingar í volgum sjónum í Eiðsvik.
Tveir nýliðar sem ekki höfðu sest í kayak áður, komu fullnuma (næstum) til baka.

Gaman að sjá hvað margir sem nýlega byrjuðu í sportinu halda áfram og eru í bátakaups pælingum eða jafnvel búin að kaupa báta eða galla.
Það er meðbyr með þessu sporti.


Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

11 ágú 2016 12:32 #2 by Gunni
Róður í kvöld, mæting 18:30.
Þessum fimmtudagsróðrum fer fækkandi í sumar, ca 2 eftir.

Róðarleið ákveðin á palli, eftir veðri, þátttöku og hvert síðast síðast var farið. Þerney líklegur kostur.
Kaffi á brúsa og PrinsPóló að maula er kosturinn.

Fjara er kl 18:36 (1.4m)
Veðurspá er skýjað, kannski blautt, hiti ca 13 gráður, vindur 2-4m/s SA

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum