Félagsróður 8. október

07 okt 2016 13:15 #1 by Siggisig
Sæl verið þið kempur. Róið verður frá höfuðstöðvum í fyrramálið 8. október samkvæmt áætlun. Mæting er kl. 9:30 og lagt íann kl. 10:00. Samkvæmt verðurspá verður vindur um 8-12 m/s úr suðaustri en ágætlega hlýtt miðað við árstíma. Flóð verður um kl. 11. Í þessari vindátt getur heimróður orðið þreytandi ef farið er langt út þannig að notalegra gæti verið að svamla eitthvað um innan nesja. Sjáum til á pallinum, förum ekki hraðar eða lengra en nýjasti nýliði kærir sig um.
Róðrarstjóri SS

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum