Tók í dag á móti Epic V10 Sport surfskíðinu og einni vængár, Epic Small Mid Wing. Að sjálfsögðu var skíðið prófað í rokinu, 3 km róður í SSV 16-24 m/s. Ekki beint bestu aðstæður til að prófa hraðskreitt skíði í fyrsta skipti, en mikið var þetta gaman og synti ekkert
Myndir af skíðinu: goo.gl/photos/fvjNKWn3XUwA5zYG7
Eftir skoðanakönnun um áhuga og mögulega notkun félagsmana á surfskíðum, þá hefur stjórn ákveðið að kaupa tvö surfskíði og tvær vængárar frá Epic Ísland, og koma surfskíðin til með að verða staðsett í Geldinganesinu fyrir áhugasama félagsmenn að nota.
Fyrir valinu varð Epic 10 Sport og Epic 12, ásamt Epic Club (Midwing) árum
Epic 10 Sport skíðið ásamt ár mun skila sér í byrjun apríl, en Epic 12 skíðið í maí-júní.