Við vorum þarna 3 klúbbfélagar og svo yngra fólk frá Keili og feðgar að prófa.
Ég var ekki lengi, tók bara skylduæfingar:
- nokkrar veltur upp á báðar hliðar
- fallið niður úr hástuðningi og velta upp
- hástuðningslega á báðar hliðar
- vot innstunga frá báðum hliðum
- vot innstunga með kollhnís
- vot innstunga og svuntan sett á í kafi
- jafnvægisæfingar á dekki (ekki þó að standa upp! )
- klifur á afturdekk frá báðum hliðum
Eitthvað verður maður að reyna þó ég leiki ekki grænlensku syrpuna eftir Lárusi eða handveltuna eftir sumum