Frábær róður í dag, 23 bátar á sjó og var farinn Viðeyjarhringur með kaffistoppi.
Það er nokkuð ljóst að það er vor í fólki því það það voru allir klúbbátar í notkun í dag.
Alltaf gaman að sjá ný andlit á sjó.
Ég er róðrarstjóri á morgun þann 1.Apríl. Stefnan er sett á Viðeyjarhring eða eitthvað álíka.
Spáin er afbragðsgóð og því reinka ég með kaffistoppi í því tilefni.
Ég hvet sem flesta til að mæta að dusta rykið af bátum eftir langan vetur og nýta þetta frábæra veður sem verður.
Svo er mjög vel séð að taka góðan hrekk í tilefni dagsins.