Félagsróður 15 apríl

15 apr 2017 20:31 #1 by SAS
Replied by SAS on topic Félagsróður 15 apríl
10 rör á sjó. Nennan ekkert allt of mikil á pallinum ogu pphaflegu róðrarplani var hent út í hafsauga, og stefnan sett á Þerney. Þar skyldu leiðir okkar og Lárusar og Kollu sem kláruðu Þerneyjarhring. Undirritaður, Ágúst Ingi, Indriði, Helga, Guðm. Breiðdal, Þormar,Sarah, Hörður heldum áfram í Lundey þar sem við hittum á næturræðrana. Enduðum 5 beina leið í höfuðstöðvar, en þrjú héldu afram með Örlygi og öðrum nátthröfnum.

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

12 apr 2017 15:25 #2 by SAS
Félagsróður 15 apríl was created by SAS
Undirritaður er settur róðrarstjóri í næsta félagsróðri sem er næsta laugardag, 15 apríl.

Veðurspáin lofar frábæru róðrarveðri, sú gula gæti sýnt sig ,þ.a. ekki er verra að hafa sólgleraugun með í för. Háflóð kl 08:43

Það er orðið langt síðan að við höfum komið við í Engey, þ.a. við stefnum þangað með stuttu kaffistoppi. Þar sem um lengri róður er að ræða, þá verður einnig í boði að fara eitthvað styttra. Nánari útffærsla verður kynnt á pallinum.

Mæting er stundvíslega kl 09:30 í Geldinganesinu

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum