Róður þessi varð snarlega að sprettróðri Kayakklúbbsins og var því aldrei farið út fyrir mörk netalaga að þessu sinni. Ég vil óska heimsmeisturum í sprettróðri Kayakklúbbsins til hamingju með frækilega sigra, þeim Svein Axel og Unni.
Sæl öll
Ég er skráður róðrastjóri annaðkvöld í félagsróðri klúbbsins. Það spáir 8-10 metra vindi úr norðri sem eykst með kvöldinu. Það gæti því orðið nokkur alda á sundinu norðan Geldinganess og Viðeyjar. Legg því til að við horfum í sjóinn af palli vorum annaðkvöld og tökum mögulega róður suður fyrir Viðey.