Það var gaman að heyra þetta frá afastelpu í morgun og auðvitað var farið á sjóinn í sólinni.
Það þarf að eiga blautbúning á krakkana, krakkavesti, lítinn kajak og stutta ár.
Kajaksportið er ekki bara fyrir miðaldra hetjur, það getur líka verið fjölskyldusport. Það þarf bara að byrja smátt, velja gott veður og vera nálægt landi.