Ég tók að mér róðurinn í forföllum Andra. Við rerum aðeins lengra, Þerneyjarsund og fyrir Geldinganes til baka. Þá gátum við horft á svæðið sem ætlunin er að flytja sarfsemi Björgunar á, en það í víkurnar landmegin við Þerneyjarsund. Það er spurning hvort við eigum ekki að senda inn athugasemd?
Við fórum yfir helstu þætti við tog og notkun toglínu á palli, hvernig best er að húkka í, hvernig hægt er að stytta línu, hvernig á að styðja annan sem er dreginn og fleira. Síðan gerðum við léttar æfingar í Veltuvík og aftur við skútupallinn á Þerneyjarsundi.
Notkun toglínu er dæmi um eitthvað sem ekki er nóg að lesa og tala um, það þarf að prófa og æfa á sjó og í mismunandi veðri og aðstæðum.
Ætlunin er að hafa aftur smá æfingu í næsta félagsróðri, það verður örugglega ekki eins, gæti t.d. verið að ná manni út úr vík milli kletta
Kveðja.