Innilaugin var vel notuð, fjöldinn um 20 ef krakkar eru með talin. Þarna voru nokkrir krakkar sem ég leyfði að prófa, einnig 3 börn ræðara, einn straumræðari, Páll R., Lárus, Eymi og svo eftirfandi efnilegu 3ja stjörnu kandidatar: Bergþór - Erna - Kolla - Sveinn M., - Unnur - Þormar.
Þetta var vel heppnuð æfing sem jafnan. Veltan var æfð auk liggjandi stöðu (balance brace) sem er lík hástuðningi eða augnabliksmynd úr veltunni þegar komið er í yfirborðið á leiðinni upp aftur. Gagnkvæm hjálpsemi og góð ráð voru gefin, góðir hlutir sem einkenna klúbbinn okkar
Starfsmaður ræddi við mig og gerði athugasemd við krakkana sem ég leyfði að prófa og málið var hver tryggir öryggi, við eða hann? Niðurstaðan er líklega sú að við megum ekki leyfa krökkum að prófa kayaka, nema þegar félagi sem er forráðamaður barns er með það og tekur fulla ábyrgð. Sami starfsmaður var ekki sáttur við 'Sundlauganótt' þegar almenningi er boðið í laugina, ljósin dempuð og hann sér ekki hvort einhver liggur á botni laugar.
Það er svo spurning hvort nokkurn tíma var forsenda fyrir einhvers konar barna- unglingastarfi hjá Kayakklúbbnum, þótt sett hafi verið í nefnd. Hver ber ábyrgð?