Flott æfing, smá austanvindur sem gerði bara gott,
Tókum stýristök aftan og framan og róður öðru megin, áhersla á að færa árina milli taka á kafi í sjó í átakslausu taki.
Snérum bátunum á punktinum og bökkuðum.
Hörður, Jón Kristinn, Perla, Kolla og undirritaður réru
Á laugardag var tekin svipuð æfing samhliða félagsróðri þá réru Sveinn Muller, Kristinn, Indriði, Kolla og undirritaður.
lg