Félagsróður annaðkvöld. Það er hárrétt og ekki orð um það meir.
Nema kannski þá að það er mæting 18.30. Farinn verður Viðeyjarhringur sunnanvert, með möguleika á viðsnúningi frá Virkisfjöru. Einhverjia mun án efa fýsa að gusa sér norður fyrir. Eitthvað hvasst í spánni. Við spilum þetta saman og höfum öryggið á oddinum og sultardropa í nebbanum plús orkukubb í vesti.
Sjáumst hress á pallinum. Fjara kl. 21.03. Munið talstöðvar sem þær eiga.