Þá er komið að hinum árlega hörpuróðri sem verður haldinn sunnudaginn 3. júní. Róið er frá Skarfakletti (mæting 12:00, brottför 12:30) eða Geldingarnesi (mæting 11:15, brottför 11:45).
Róið verður meðfram ströndinni og inn í Reykjavíkurhöfn og tekur það um 40 mínútur frá Skarfakletti. Róum aðeins um í höfninni, sýnum okkur og sjáum aðra. Tökum síðan gott kaffistopp við sjóminjasafnið um kl. 14:00 áður en haldið er til baka. Áætlað er að koma til baka að Skarfakletti kl. 16:00.
Endilega skráið ykkur hér á Korkinum í ferðina. Takið fram hvort þið róið frá Skarfakletti eða Geldingarnesi.
Þeir sem róa frá Geldingarnesi passi sig á skipaumferð þegar farið er á milli Viðeyjar og Sundahafnar.
Flóð er kl. 9:17, fjara 15:17.
Veðurspáin er góð, sól of flott veður, en spáin er þó varla marktæk ennþá.