Félgsróð 28. jún.

04 júl 2007 17:10 #1 by Sævar H.
Replied by Sævar H. on topic Re:VARÚÐ GLENS!
Það er erfitt að gera sér grein fyrir hversu stórt og öflugt þetta öldubrot er... þessvegna nokkra sentimetra
vindgjálfur í fjöruborðinu...en án gamans myndin er flott.:P

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 júl 2007 12:50 #2 by GUMMIB
Replied by GUMMIB on topic Re:VARÚÐ GLENS!
Já þetta er ekkert spaug. Þetta var rétt utan við Hjalteyri eða þannig.:)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 júl 2007 03:21 #3 by Orsi
Replied by Orsi on topic Re:VARÚÐ GLENS!
Já, það er farið að hvítna aðeins í báru þarna. Feginn að ég hélt mig bara á Fossvoginum, þó það hafi ekki verið neitt glens heldur.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 júl 2007 02:10 #4 by Rúnar
Replied by Rúnar on topic Re:VARÚÐ LENS!
Hér á myndin að birtast <br><br>Post edited by: Rúnar, at: 2007/07/03 22:12
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 júl 2007 01:55 #5 by Rúnar
Replied by Rúnar on topic Re:VARÚÐ LENS!
Jú þetta er svipað og við hrepptum í Eyjafirði. Martin náði einni mynd.

Post edited by: Rúnar, at: 2007/07/03 21:57<br><br>Post edited by: Rúnar, at: 2007/07/03 22:07
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 júl 2007 21:30 #6 by Orsi
Replied by Orsi on topic VARÚÐ LENS!
Það var nú meira lensið á Fossvoginum í gærkvöldi. Er þetta ekki svipað og Húsavíkurfararnir máttu reyna um daginn? Kannski meira? Ég hef amk. aldrei lent í öðru eins rjúkandi lensi og þarna. Mynd til sönnunar.
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 júl 2007 01:33 #7 by Orsi
Replied by Orsi on topic frey&amp;greg
Sko þau! Komin á Höfn eftir hörkubras. Já, þetta mátti nú ekki verða OF auðvelt. Það var ekki sanngjarnt hvað þetta gekk vel í byrjun.
freyahoffmeister.blogspot.com/

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

29 jún 2007 21:43 #8 by Orsi
Félgsróð 28. jún. was created by Orsi
Tólf manns réru í gær í þessu líka fína veðri. 24. félagsróður ársins var orðin að staðreynd. Við byrjuðum á Viðeyjarhring og tókum hlé eftir róður umhverfis eyjuna. Vinsæll kaffistaður þetta að verða þarna á Eiðinu enda ekkert undarlegt á síðkvöldum. Sólin bakar Eiðshólana og skapar skemmtilegar andstæður ljóss og skugga þegar roðagylltur himinninn...nóg um það. Eftir kaffi skipti hópurinn sér og rúmur helmingur fór beint heim en afgangurinn tók Lundeyjarkrækju og enn aðra krækju um Þerney. Meiri krækjurnar í þessu fólki. En þetta var ákaflega ljúft. Lundarnir léku sér og æðarkollurnar syntu með ungana sína innan um fjörugrjótið. Komið var í land um ellefuleytið og einhverjir metrar settir í gula handritið.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum