Ég held að rétt væri að ota þessum upplýsingum að þeim sem eru að hanna Sundabraut. Það verður örugglega brúað og fyllt upp einhverstaðar á sundunum og ef þeir eru með rétta hugarfarið þá gæti tækifærið legið þar án þess að kosta of mikið. Ég fékk mína fyrstu salibunu í svona tilbúinni braut og henni var haganlega komið fyrir inni í miðjum bæ þar sem að ánni sem bærinn var byggður við var beint inná 100-200m langa þrautabraut. Þær þjóðir sem hafa haft fyrir því að útbúa íþróttaaðstöðu fyrir borgarana fá það margfalt tilbaka.
en.wikipedia.org/wiki/List_of_artificial_whitewater_courses