Þá er komið að hinum árlega Hörpuróðri sunnudaginn 2. júní.
Endilega skráið ykkur í ferðina hér á Korkinum. Takið fram hvort þið róið frá Geldingarnesi eða Skarfakletti.
Róið verður frá Geldingarnesi kl. 11:45 og frá Skarfakletti kl. 12:30 fyrir þá sem kjósa styttri róður. Mæting hálftíma fyrir uppgefna brottfarartíma.
Um 40 mínútna róður er frá Skarfakletti inn í Reykjavíkurhöfn.
Róið verður meðfram ströndinni og inn í Reykjavíkurhöfn. Tökum kaffistopp við Sjóminjasafnið um kl. 14 áður en haldið verður til baka.
Áætlað er að koma til baka í Geldingarnes um kl. 16:30.
Tilvalið er fyrir félaga okkar í Kayakhöllinni að mæta í þennan róður.
Nánari upplýsingar,
Sveinn Muller,
844 4240.