Alltaf skal þessi sunnan óþjóðalýður vera samur við sig.
Þegar þeir sjá að Árbátafélagið hefur bæði líkamlegan og tæknilegan styrk fram yfir, fara þeir að beita alls konar óþrifaráðum.
Í upphafi úrslitaferðarinnar þegar KFC (Kellingar,feitabollur, ckæluskjóður)liðar sjá að við erum að stinga af ákveður Jón sunnanóheiðarlegur að lunga mig með framendanum á bátnum sínum og stoppar þar með úrslitaferðina og tekur mig úr leik þar sem að erfitt er að halda áfram með fimm brotinn rif,gat á lunga og mænuskaða.
En hann lætur samt undir höfuð leggjast að láta Jón NorðanHeiða vita þannig að hann klárar runnið í öðru sæti, en það runn er ekki tekið gilt.
Þannig að í enn eitt skiptið erum við rændir sigri af Reykjavíkurmafíunni Sem stjórnar líka dómstólum þessa lands og af þeim sökum munum við snúa okkur beint til óþjóðalýðs dómstólsins í Haag.
Annars var þetta frábær helgi og takk kærlega fyrir mig.
kv Garðar Heimsmeistari.