Rsk hvetur nú félagasamtök o.fl. að skila inn upplýsingum um "raunverulega eigendur" að viðlögðum sektum. Ég er í tveim litlum félögum þar sem eignin er af stærðargráðunni eitt hundrað þúsund og þvíer ekki mikið í húfi og enfalda leiðin farin að skrá formann sem eiganda. Hvernig á að gera þetta hjá Kayakklúbbnum eða íþrótafélagi þar sem eignir eru tugir og upp í hundruð milljóna - og á þessi "raunverulegi eigandi" að telja eignina fram til skatts, má hann gefa eða selja hana, Þetta er fremur spurning til stjórnvalda fremur en stjórnar klúbbs.
Ef farin er sú leið að senda inn félagatal þá er verið að brjóta á grunnatriðum persónuverndar. Ég er t.d. í félagi sem styður illa statt fólk, mikið börn og ekkjur í borg í Sýrlandi á svæði stjórnahersins. Þar með er ég í óvinaliði Bandaríkjamanna ef ég þekki þá rétt rétt. Ef þið lesið bók Snowdens 'Permanent Record' má sjá að fá stafræn gögn eru örugg í dag og ég treysti ekki Rsk til að gæta þeirra, eða bara að USA gerir kröfu um að fá þau og ísl. stjórnvöld leggja leggj niður rófuna.
Jæja þetta er óvenulegur pistill í kajakklúbbi - og því verður hann ekki lengri.