Hér er grein um nokkuð sérstaka ferð sem farin var 7. des 1942. 6 tveggja manna kayakar voru notaðir í þessari aðgerð. Enskur kafbátur kom upp á yfirborðið að næturlagi nærri ósum La Gironde sem Bordeaux liggur við. Blondie Hasler stakk uppá þessari ferð og tóku 12 manns þátt í róðrinum sem hafði það að markmiði að gera usla í hafnarborginni sem var mikilvæg hernaðarlega fyrir setulið nasista í Frakklandi. Til að gera langa sögu stutta þá tókst aðeins fjórum mönnum að komast alla leið að herskipunum þar sem tókst að festa með segulstáli sprengjur á 5 skip. 6 klst síðar heyrðu þeir sprengingarnar en þá voru þeir komnir langt niður ánna. Þeir sökktu kayökunum og fóru fótgangandi yfir til Spánar. Aðeins komust Blondie Hasler og einn annar lífs af úr þessari feigðarför. Talið var að þessi aðgerð hafi stytt stíðið um 6 mánuði eftir því sem sagt er í greininni.
Ástralir gerðu svipaða árás í Singapúr þar sem Japanir höfðu flotastöð. Greinin er myndskreytt og einnig er minnst á svona aðgerðir í Falklandseyjastríðinu og svo eru í Guyana kayaksveitir sem nýtast við að berjast gegn smyglara gengjum þar um slóðir.
kv
Ágúst Ingi
issuu.com/nautiraid/docs/nautiraid_magaz...ZYdeoMYc98n-CEBE1IZs