Heilt og sælt veri fólkið.
Við gámavafstrið undanfarið fannst m.a. bunki af Fréttabréfi Kayakklúbbsins 2008. Prentað í A4 og á fínan pappír. Orðið nógu gamalt til að vera skemmtilegt að líta í. Fyrir áhugasama, þá er bunkinn íplastkassa á hillunni inn af sturtunum, til hægri. Þá var Páll Gests að taka við formanninum af Steina, sem það hafði verið lengur enelstu menn mundu. Á forsíðu er mynd af Barðdalnum í sínum græna markeip. Tvær ferðasögur eru þarna, önnur af Hornströndum hin af Langasjó. Svo er líka saga af straumkayakferð í Noregi og önnur úr Stóru Laxá. Sagt er frá starfinu í Reykjavík og á Norðfirði. Nefnd er ný Grænlensk kayaktíska, rætt um veltubjörgun og fleira tilfallandi.
Frá aldamótunum var gefið út fréttablað, nokkuð árvisst allttil 2008. Síðan hefur ekki komið fréttablað, varð mönnum svona hverft við við skellinn 2008 ? Ég tel gott að gera þannig grein fyrir klúbblífinu hvert ár og hvert stefni þó margt af því, sem þar yrði sé að finna á vef
klúbbsins, undir ýmsum fyrirsögnum.