Enginn róðrarstjóri var skráður á róður dagsins, telst róðurinn þá nokkuð félagsróður?
Undirritaður ásamt Indriða, Valla sport og Herði rérum Þerneyjar-Geldinganes hring í frábæru desember veðri, nánast í logni.
Mættum Rad á bakaleiðinni sem póstaði á Facebook að við hefðum skilið gám 2 eftir opinn, sem er engan veginn gott.
Rad skrifaði einnig að lásinn á gám 2 stæði á sér og væri vesen að loka honum. Húsnæðisnefnd á kannski auka lás á lausu?
kv
Sveinn Axel