Kæri félagsmaður,
Stjórn Kayakklúbbsins hefur ákveðið að senda rafræn félagsskírteini til félagsmanna þetta árið.
Greiðsluseðlar vegna félagsgjalda 2022 verða sendir út bráðlega og svo í framhaldi af því þá munu félagsskírteinin verða send út.
Til þess að þetta gangi smurt fyrir sig þá óskar stjórn eftir því að þú, félagsmaður, smellir á eftirfarandi hlekk :
forms.gle/DYgbTZJVbWujGjCcA
og skráir inn þær upplýsingar sem óskað er eftir. Við munum nota þær til að uppfæra skráningu félagsmanna í kerfinu hjá okkur. Þær eru svo grunnurinn að því sem verður á félagsskírteininu.
Okkar von er að við náum að senda öllum skuldlausum félagsmönnum skírteini og það muni svo auðvelda okkur að sækja afslætti til fyrirtækja.
Með kveðju,
Stjórnin