Það láðist víst að auglýsa félagsróður nú á laugardaginn - settur róðrarstjóri var í röngu landi og því ekki tiltækur.
Undirritaður dró stutta stráið á pallinum og tók að sér hlutverkið. Róið var í austurátt, þétt við land, inn að ósum Korpu, og svo undan vindi stutta leiðin til baka.
15 voru mættir, góð blanda af reyndum ræðurum og nýjum andlitum.
Indriði