Jú, jú þetta er á dagskránni.
Klassíst, mæting kl 18:29 og á sjó kl 19:01.
Skoðum leiðir á pallinum.
Háflóð í kringum 20 og skemmtilega hátt í. Passið þá hvar þið leggið bílum á meðan róður á sér stað.
Vindur úr SA 6-8 m/sec. og meiri nær fjallinu. Þ.a.l. Geldinganes, Viðey og Grafarvogur á listanum.
Kaffibrúsi og prins-póló í lestinni fyrir örstutt kjaftastop.
Byrjendur og nýliðar látið róðarstjóra vita af sér sem fyrst.