12 ræðarar mættu til æfinga í gær og skiptist til helminga milli straumvatn- og sjókayakræðara. Að auki svaraði einn kallinu um að sitja í pottinum allan tímann til skrafs og ráðagerða.
Rétt er að benda á að veður er með verra móti. Þeir sem ekki treysta sér með kayaka á toppnum geta notað straumvatnsbátana sem eru í kjallaranum. Eða bara setið í pottinum og spjallað, það þarf einhverntíman að gera það líka.