Ef einhverjir eru í leit að notuðum fyrsta flokks tjöldum við lágu verði, ættuð þið að athuga hvort ekki takist að krækja í eitthvað gott á basar Alpaklúbbsins fim 15. nóv. Ónefnd ferðaskrifstofa verður þar á staðnum með tjöld, mig grunar að þar sé átt við Íslenska fjallaleiðsögumenn og að þeir verði semsagt með North Face tjöld. Ýmsir kayakmenn hafa gert frábær kaup þegar þessi aðili efnir til útsölu á notuðum búnaði og því vildi ég tippa ykkur á þessu.
Staðsetning basarsins er Skútuvogi 1 G, þar sem Klifurhúsið er. Byrjar kl. 20 með myndasýningu og basarinn tekur við í framhaldinu.