Fullveldisróður í dag 1. des. Fimm manns í roki og sjógangi skoppa til og frá og vona að einhver fari á hvolf til að fá björgunaræfingu. Enginn fór á hvolf samt. Geldinganesið tekið austanvert og farið út í Viðey í bráðfyndnu fullveldissjólagi, djúpum öldudölum, kröppum og hvítfextum vindöldum og fleiru. Stoppað í Virkisfjöru á heimleiðinni og étið fullveldisnesti. Restin var að mestu róleg enda farið að lægja og þá var eitthvað um æfingar á hvolfi.
Þessir réru:
Hörður K.
Páll
Rúnar P.
Sveinn Axel
Orsi