Á morgun, laugardag 24. maí, er ferð fyrir þá sem vilja komast út í eyjar við Reykjavík með aðeins léttari hætti. Mestu kappar geta farið úr Geldinganesi og hitt okkur hin sem förum frá Örfirisey suður, austur og norður fyrir Engey. Ef veður er gott, sem það verður, mætti hugsa sér að fara inn með ströndinni fyrst að Skúlagötu og svo yfir að Engey. Áð í Akurey, róið þaðan aftur inn í Örfirisey eða ef veður er gott út í Gróttu og Seltjörn, bílar svo sóttir. Háflóð er um kl. 09. Mæting kl. 10 rétt utan við Seglagerðina Ægi nálægt ysta hafnargarðinum í Örfirisey með heitt á brúsum og aðra hressingu að vild. Auðveldur róður.
Umsjón: Ferðanefnd, Reynir Tómas, s. 824 5444 eða reynirghjalandspitali.is eða
reynir.steinunnhjainternet.is.