27. september sl. var skipulagður róður frá Nautólfsvíkinni og yfir á Álftanesið, í tilefni af uppskeruhátíð Kayakklúbbsins. Veðrið gerði okkur nokkuð erfitt fyrir þar sem vindur var töluverður, en aldan skemmti okkur því betur.
Það var víst tekið video af okkur, þegar við komum að Álftanesinu og eins lendingunni í fjörugarðinum. Magnað video að sögn þeirra sem mættu á sjálfa uppskeruhátíðina síðar um kvöldið þar sem þetta var sýnt.
Hvernig væri að leyfa okkur hinum að sjá þessa ræmu sem ekki mættu á uppskeruhátíðina? Er hún einhversstaðar aðgengileg á vefnum?
kveðja
Sveinn Axel