Sex bátar fóru á sjó innan við eiðið. Vindur var hvass vestan til norðvestan og mælingar hjá Veðurstofunni sýna 16 m/s upp í 22 m/s vindhviður kl. 11 á Geldinganesi. Eftir eina veltu var haldið undan vindi með landi, sumir fóru í land og sóttu bátana á bíl en við Páll R og Ingi fórum inn í víkina neðan við Korpúlfsstaði og var þar gott skjót fyrir kaffisopann. Það mátti síðan ekkert gefa eftir til að komast til baka. Þetta var heldur stuttur dagur, en þó nægjanleg áreynsla fyrir daginn.
Kveðja, GHF.