6 mættu og 5 réru. Öfugur Viðeyjarhringur. Ekki tekið kaffistopp. Myndarlegar bylgjur við vesturendann eins og búast mátti við. Alltaf jafnflott að sjá þegar suðaustan golan þeytir froðunni ofanaf briminu sem brotnar á grynningunum. Nokkrir hvítmávar reyndu að skíta á okkur en við náðum að víkja okkur undan.
þessir 5 fræknu voru Hörður, Sveinn Axel, Lárus, Smári og undirritaður. Maggi mætti líka en þurfti að mæta í vinnu svo að hann horfði bara á í þetta sinn.
Kveðja,
Ingi