Þá er mótsnefnd búin að sjóða saman drög að dagskrá
í boði verða ýmis námskeið, fyrirlestrar, sprettróður, björgunarsýningu og veltukeppni
Sérstakir gestir
Shawna Franklin og Leon Sommé en þau reka kayakskólann Body boat blade og voru kjörin nýverið af lesendum Sea Kayaker bestu kajakleiðbeinendurnir á vesturströnd Bandaríkjanna
Fimmtudagur 28. maí
Mótsaðstaða í fjörunni neðan Norðfjarðarkirkju verður opin þeim sem mæta snemma á svæðið. Eins kaffihúsin Nesbær og Frú Lúlú.
Föstudagur 29. maí
10-16
Body Boat Blade Heildags námskeið
Verð 12.000 kr
Námskeið um orsakir og afleiðingar, þægindi og afköst. Sérhannað námskeið frá aðalleiðbeinendunum okkar þetta árið sem tekur á meðhöndlun og samhæfingu líkama, kajaks og árar. Frábært námskeið fyrir breiðan hóp ræðara. Nánari upplýsingar á
www.bodyboatblade.com
20-00
Grill og fyrirlestur
Grillað í fjörunni við nýja félagsaðstöðu KAJ. Eftir grill leiða Shawna og Leon okkur hringinn í kringum Ísland í fyrirlestri um ferð sem þau fóru sumarið 2003.
Laugardagur 30. maí
8-10
Morgunverðarhlaðborð hjá Frú Lúlú
10-13
Bjarganir á kajak Verð 6.000 kr
Leiðbeinendur Shawna eða Leon. Mæting í Kirkjufjöru.
10-13
Áratök Verð 6.000 kr
Leiðbeinendur Shawna eða Leon. Mæting í Kirkjufjöru.
10-13
Veltur og æfingar í Norðfjarðarlaug
Verð 1.000 krEinstaklingskennsla sérsniðin að þörfum hvers og eins. Veltur fyrir byrjendur og lengra komna.
10-13
Fyrstu tökin Verð 3.000 kr
Námskeið fyrir byrjendur og styttra komna. Mæting í Kirkjufjöru. Leiðsögn félagar Kaj.
14-17
Nípuróður
Róið út Norðfjörð milli skerja og skúta og ferðin nýtt til æfinga á verkefnum dagsins. Leiðbeinendur stýra æfingum
14-16
Innanfjarðarróður
Stutt ferð með æfingum fyrir byrjendur og styttra komna. Leiðbeinendur stýra æfingum
20-00
Grill og fyrirlestur
Grillað í fjörunni. Umræður um námskeiðahald, hagnýtt fyrir þá sem áhuga hafa á að sækja kajaknámskeið almennt, eða næla sér í stjörnur. Shawna segir frá BCU kerfinu.
Eftir grill halda Leon og Shawna fyrirlestur og myndasýningu
Sunnudagur 31. maí
8-10
Morgunverðarhlaðborð hjá Frú Lúlú
10-13
Bjarganir á kajak Verð 6.000 kr
Leiðbeinendur Shawna eða Leon. Mæting í Kirkjufjöru.
10-13
Blönduð áratök Verð 6.000 kr Leiðbeinendur Shawna eða Leon. Mæting í Kirkjufjöru.
10-13
Fyrstu tökin Verð 3.000 kr
Námskeið fyrir byrjendur og styttra komna. Mæting í Kirkjufjöru. Leiðsögn félagar Kaj.
10-13
Veltur og æfingar í Norðfjarðarlaug
Verð 1.000 krEinstaklingskennsla sérsniðin að þörfum hvers og eins. Veltur fyrir byrjendur og lengra komna.
14-16
Róðrakeppni,
veltukeppni og
björgunaræfing
Hér er á ferðinni viðburður sem gaman er að fylgjast með. Sprettróðrarkeppnin veitir stig til Íslandsmeistaratitils. Krýndur verður veltumeistari Egils Rauða. Björgunaræfingar, sýndar verða ýmsar útfærslur á björgun.
Hagnýtar upplýsingar
Kostnaður:
Fjöldi fyrirtækja, samtaka hafa styrkt mótið og með þeim hætti er hægt að halda námskeiðakostnaði niðri. Til að koma til móts við kostnað erlendra leiðbeinenda er sett verð á öll námskeiðin og eru þau hér að framan, annars eru þau niðurgreidd með styrkjum og auglýsingum
Námskeið:
Skráningar á námskeið hjá
Ritu Hvönn í síma 664 3665 eða steini@seakayakiceland.com
Hægt verður að greiða námskeiðin á staðnum, vinsamlegast komið með reiðufé. Það er hraðbanki í Sparisjóð Norðfjarðar ofan við fjöruna.
Leiðbeinendur:Shawna, Leon, aðrir leiðbeinendur verða félagar úr kajakklúbbnum KAJ og Rvk
Bátaleiga:
Hægt verður að leigja kajaka á meðan mótinu stendur. Hafðu samband við Helgu Hrönn hhsm@simnet.is eða í síma 860-6813 og fáðu upplýsingar um báta og verð. Takmarkað framboð - fyrstir panta fyrstir fá!
Upplýsingar:
kayakklubburinn@gmail.com, einnig umræður á spjallvef
www.kayakklubburinn.is
Veitingastaðir
Hótel Egilsbúð, Kaffi Nesbær, Frú Lúlú, Söluskáli Olís, Hótel Capitano, Hótel Edda.
Gistimöguleikar:
· Svefnpokapláss í nýrri félagsaðstöðu KAJ, ath að endurbætur eru á byrjunarstigi.
· Tjaldstæði við Snjóflóðavarnargarða, ofan við Egil Rauða
· Hótel Capitano,
Hafnarbraut 50,
sími 477 1800/861 4747, fax 477 1501, netfang island@islandia.is
· Hótel Edda
Nesgötu 40
Sími: 444 4860
edda@hoteledda.is
www.hoteledda.is
· Egilsbúð,
Egilsbraut 1,
sími 477 1321, fax 477 1322,
www.egilsbud.is
· Gistiheimilið Skorrastaður,
sími 477 1736, skorra@simnet.is ,
www.skorrahestar.123.is
· Tónspil - gisting,
Hafnarbraut 22,
sími 477 1589, netfang tonspil@tonspil.is,
www.tonspil.is
· Ferðaþjónustan Mjóeyri, -
gistiheimilli Eskifjörður
www.mjoeyri.is, 477 1124
Post edited by: Ari Ben, at: 2009/05/13 13:02
Post edited by: Ari Ben, at: 2009/05/13 13:21
Post edited by: Ari Ben, at: 2009/05/13 13:24
Post edited by: Ari Ben, at: 2009/05/13 14:59<br><br>Post edited by: Ari Ben, at: 2009/05/14 15:07