Síðasta haust urðum við Maggi, Hörður og undirritaður frá að hverfa (ásamt tómum bát Örsa!) þegar við vorum komnir skammt áleiðis yfir Borgarfjörðinn á leið í Straumfjörð. Þá hafði hvesst talsvert af SV.
Nú stefnum við Maggi á að róa fram og til baka þessa leið frá Belgsholti í Melasveit mánudaginn 2. í páskum. Hafi fleiri áhuga og tíma væri fínt að vera í stærri hóp.
Við skipuleggjum þetta nánar í næstu viku og setjum á korkinn.