Það er spurningin Eymi! Flestir mundu nú vera að hugsa um að taka svona veltu á hlið undan öldunni og vera fyrri til, en leyfa henni svo að velta sér upp aftur, þegar hástuðningur liti ekki út fyrir að duga því aldan væri of brött eða orðin íhvolf.
Hins vegar finnst mér bara sanngjarnt að yngri menn geri smá tilraun og láti síðan vita um árangurinn. Hún er þannig að fara beint undan og velta sér í brattanum þegar sjá má í hvað stefnir, svo endastingst kayakinn og þú situr réttur með hausinn upp, ennþá á ferðinni aftur á bak og getur nú sett allt í botn og róið út aftur.
Hver býður sig fram?
Kveðja, GHF.<br><br>Post edited by: Gíslihf, at: 2009/10/23 08:28