Þriðjudagsróður á Miðvikudegi !!
sprækur róður i töluverðri öldu en mildu og þægilegu veðri norður fyrir Viðey og til Engeyjar, hringuðum eyna og tókum rólega heimferð á lensi.
Átta kallar fóru af stað, skiptum hópnum við Viðey þar sem nokkrir tóku skemmri hring. Skv map24 lágu rétt rúmir 15 km. hjá þeim sem tóku lengri túrinn. Eftirtaldir ræðarar lögði af stað: Ingi, Eymi, Svenni, Gísli, Páll R, Þórsteinn, Gunnar Ingi og undirritaður réru. kv lg<br><br>Post edited by: Larus, at: 2010/01/27 21:45