Þessi æfing var með þeim fjölmennari það sem af er ári. Um 30 manns voru í lauginni, þar af tveir ungliðahópar.
Fyrri hópurinn, nemendur úr Breiðholtsskóla, byrjaði kl. 15 og síðan kom hópur frá félagsmiðstöðinni í Gufunesi. Þessum krökkum er öllum þakkað fyrir heimsóknina. Og síðan komu gömlu sóðarnir og iðkuðu sköll og veltur svo unun var á að horfa. Ég held að hlutfall kvenna og karla hafi líka svei mér verið jafnt á þessari æfingu.
Sómi að þessu í hvívetna.
-Sundlauganefnd.