Hörður, Þórsteinn, Eymi,Sveinn,Lárus, Örsi og Ingi fóru snarpann hring um Þerney og Lundey. Örsi og Eymi þurftu að fá meiri brennslu og hópurinn skipti sér við Lundey og eldri menn fóru beint heim en þeir fóstbræður komust alveg að vesturodda Viðeyjar áður en þeir settu nef í vind og komu samt á svipuðum tíma í heimafjöru sem var óvenjulega há í gær og var næstum hægt að fleyta sér uppá pall. Fínn róður 12 km hjá eldri mönnum en eitthvað lengra hjá þeim yngri og hressari.
Bjart og gott veður en smá austafræsingur á heimleiðinni.
Ingi