Fjögur vorum við sem rerum um Leirvoginn í nokkuð krappri vindöldu á uppstigningardag. Þetta var fínasta æfing í öldudansi og allir fengu eitthvað fyrir sinn snúð. Ræðarar voru auk mín, Magnús, Perla og Össur sem reri á nýjum Point 65 bát og var býsna ánægður með gripinn.