10 á sjó í kvöld. SPerla, Sigurbergur, Einar (hinn syndi), Sigurjón, Össi, Stefán, Lárus, Valdi, Kristinn og Gunnar Ingi.
Fórum norður fyrir Þerney í NA 5-7. Ágætis lens við Gunnunes og þar hvoldi Einari. "Klettaskopp" og kaffistopp vestan í Þerney.
Aftur klettaskopp við Geldinganes og æfingar við Pólverjabryggjuna veltur, ródeo og félagabjarganir. Þar hvoldi Einari aftur en núna við björgunarstörf.
Þetta var ca 12km róður.