Sundlaugaæfingar byrja nú í september. Verða auglýstar á síðunni okkar. Allir velkomnir þangað.
Besta byrjunin er að mæta á byrjendanámskeið. Maggi Sigurjóns mun taka upp þráðinn í haust og halda áfram með sín ágætu námskeið. Einnig auglýst á heimasíðunni. Annars má hafa samband við Magga beint, msig@simnet.is
Síðan þegar búið er að kynna sér þetta aðeins þá er rakið að nýta sér hina vikulegu félagsróðra þar sem passað er sérstaklega upp á nýliða og þeir dekstraðir á ýmsan máta. Tengillinn sem þú minnist á inniheldur einmitt fína síðu fyrir nýliða þar sem margt gagnlegt kemur fram.