Félagsróður 27.11

27 nóv 2010 14:11 #1 by Larus
Félagsróður 27.11 was created by Larus
Fjórir ræðarar mættu i höfuðstöðvarnar i morgun, spegilsléttur sjór og frost stilla var þegar lagt var upp i Viðeyjarhring með viðkomu i sólstofunni góðu. Frábært veður gerðu þennan kalda róður alveg frábærann, teknar voru léttar veltu og björgunaræfingar til að sannfæra okkur um að sjórinn væri ekkert svo kaldur...... Þóra, Egill, Gummi Breiðdal og lg réru.

Við undruðumst fámennið en áttuðum okkur á að menn og konur væru örugglega farin að huga að jólaserium og öðru skemmtilegu enda sá árstími komin og kayakræðarar flestir mikil jólabörn . lg:--)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum