Félagsróður 22.janúar

22 jan 2011 14:59 #1 by Þóra
10 bátar á sjó í dag í ágætis veðri, smá brim á stöku stað sem dró hugaða ræðara til sín. Einn fékk að synda en var snarlega bjargað af vöskum vinum.
Þó að logn sé þegar lagt er í´ann getur verið ágætt að hafa hjálmana tiltæka og endilega vera búin að setja þá á höfuðið áður en farið er í brimið þó það sé ekki mikið.
Þau sem réru í dag voru: Þóra, Gunnar Ingi, Sveinn Axel, Ágúst Ingi, Össur, Þórólfur, Þorbergur, Páll, Þorsteinn, Sigurjón.

ps. múkkinn er mættur

Sjáumst á sjó :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum